| Snjóflóðaleitarnámskeið nýliða á Siglufirði |
|
|
| Skrifað af: Bryndís Baldursdóttir |
| Miðvikudagur, 10. mars 2010 20:26 |
|
Stutt lýsing á þessari helgi mundi vera einhvernvegin svona: Óveðurskrákurnar í Nýliðahópnum rústuðu skíðasvæði Siglfirðinga, stútuðu trússkerrunni og kveiktu í uppþvottavélinni. Annars var bara stuð. Það var búið að vera stöðugt fannfergi á Siglufirði frá því um áramót og alveg þangað til við lögðum af stað uppúr klukkan 18 á föstudaginn með fulla trússkerru af vetrarbúnaði, skíðum og snjóbrettum. Eftir því sem norðar dró jókst vindurinn og þegar lega fór í kerruhjólinu okkar var orðið nógu hvasst til að það var varla stætt á bílaplaninu á Blönduósi þar sem við skildum trússkerruna okkar eftir. Frá Blönduósi keyrðum við með skíðabúnaðinn á rútugólfinu og báða bílana troðna af farangri. Þegar við nálguðumst Siglufjörð fórum við að svipast um eftir öllum skíðasnjónum. Það var grunsamlega autt í brekkunum í kringum bílinn og úti var rok og rigning. Við keyrðum upp að gistiheimilinu einhversstaðar öðru hvoru megin við miðnættið og börðumst inn með farangurinn í rokinu. Gistiheimilið var yndislegt og nýliðum fannst almennt sérlega notaleg tilbreyting að sofa í rúmi inni í húsi. Koníaksstofan sló alveg í gegn. Þægilegir sófar og sjónvarp. Við vorum líka með gott nesti og frábæra kokka með okkur og eldhúsverkin á gistiheimilinu gengu snurðulaust fyrir sig, líka þegar kviknaði í uppþvottavélinni og einn af yngri meðlimum hópsins sýndi snögg viðbrögð, greip slökkvitæki af eldhúsvegg og slökkti í eins og hendi væri veifað. Það var ennþá rok og rigning þegar við vöknuðum á laugardagsmorguninn og það veður hélst fram eftir degi en seinnipartinn breyttist rigningin í snjókomu og fyrr en varði fór að kyngja niður snjó. Þar sem verulegur skortur var á snjó á laugardagsmorguninn en veðurspáin var betri fyrir seinnipartinn og sunnudaginn ákvað Stefán Jökull að keyra áfram fyrirlestrana og klára þá á laugardaginn. „Það var hérna snjóflóð sem ég ætlaði að sýna ykkur en það er horfið núna. Hér er mynd af því. Svo var hérna alveg stórskemmtileg snjóhengja sem ég ætlaði að sýna ykkur en hún er farin núna. Hér er mynd af henni.“ En án gríns þá er Stefán Jökull alveg stórskemmtilegur fyrirlesari og þó að velflest sýnidæmin í landslaginu í kringum Siglufjörð hefðu tekið sig til og horfið í rigningunni á föstudagskvöldið þá leið laugardagurinn hratt. Um fjögurleitið fórum við svo í leitaræfingar og vorum fram í myrkur í roki og skafrenningi að leita að snjóflóðaýlum í snjósköflum og skemmtum okkur konunglega. Að loknum síðbúnum kvöldverði fengum við að skoða húsnæði og búnað björgunarsveitarinnar á Siglufirði og okkur fannst aðstaða Siglfirðinganna tilkomumikil. Við fengum leyfi til að keyra gegnum nýju Héðinsfjarðargöngin og árla á sunnudagsmorgun var farið yfir í hinn næstum því ósnortna Héðinsfjörð. Þar grófum við snjógryfjur og svo prófuðum við að grafa nokkra félaga okkar og potuðum í þá með snjóflóðaleitarstöngum. Svo æfðum við stangaleit og aðeins meiri ýlaleit og fengum góða snjóflóðaæfingu í boði reyndra félaga. Eftir hádegi var ráðgert að fara á skíði eða snjóbretti en var kominn brjálaður snjóbylur og á meðan bílstjórinn okkar notaði skíðagleraugu við aksturinn í bæinn hringdum við í skíðasvæðin og komumst að því að á Siglufirði var fjallið lokað vegna veðurs. Það var hins vegar opið í Bláfjöllum. Skortur á tækifærum til skíðaiðkunar á Siglufirði breytti því ekki að þetta var frábær helgi og gott námskeið. Sum okkar telja að þetta hafi verið skemmtilegasta námskeiðsferðin til þessa. Ég vil þakka kennaranum okkar, bílstjórunum, fararstjóranum, nýliðaþjálfaranum og hjálparkokkunum fyrir alveg frábæra helgi, og hinum nýliðunum fyrir samveruna. Þið eruð öll frábær! |

