Áramótablað sveitarinnar er komið úr prentun! Það mun koma inn um lúguna á heimilum í Kópavogi sem afþakka ekki fjölpóst í dag. Í blaðinu sem er sérstaklega veglegt í ár fá lesendur innsýn í fjölbreytt starf sveitarinnar á árinu.
Í dag hefst líka stærsta fjáröflun sveitarinnar sem er flugeldasalan. Upplýsingar um sölustaði eru inni á hssk.is/flugeldar og vefverslunin er inni á flugeldar.hssk.is
Deila fréttinni