Kynning á nýliðaþjálfun HSSK

Hefur þú áhuga á björgunarsveitarstarfi og langar að vita meira um hvað felst í því að verða nýliði hjá HSSK?

Miðvikudaginn 26. ágúst kl. 20:00 höldum við kynningu á nýliðaþjálfun Hjálparsveitar skáta í Kópavogi í húsakynnum okkar að Tónahvarfi 8.

Á kynningunni förum við yfir starfsemi sveitarinnar, verkefnin okkar og hvernig nýliðaþjálfun HSSK er uppbyggð.

Nýliðaþjálfunin er krefjandi, fjölbreytt og gefandi og gerir miklar kröfur til þeirra sem hana stunda. Hún veitir jafnframt góða innsýn í björgunarsveitarstarf og þá þekkingu og færni sem þarf til að takast á við fjölbreytt verkefni.

18 ára aldurstakmark er í nýliðaþjálfun.

Öll sem hafa áhuga á að kynna sér starfið og þjálfunina eru velkomin á kynninguna.

Við hlökkum til að sjá sem flest!

📍 Tónahvarf 8, Kópavogi
📅 26. ágúst
⏰ Kl. 20:00

Deila fréttinni

Nýjustu fréttir

Hjálparsveit skáta í Kópavogi