Neyðarkallinn árið 2025 er Straumvatnsbjörgunarmaður. Var hann gerður í minningu Sigurðar Kristófers McQuillan Óskarssonar, félaga okkar í Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, en hann lést í hörmulegu slysi við straumvatnsbjörgunaræfingar í Tungufljóti í nóvember á síðasta ári. Við minnumst hans með virðingu og þakklæti.
Í HSSK er öflugur straumvatnsbjörgunarhópur. Félagar hans eru tilbúnir að takast á við leitar- og björgunaraðgerðir í vötnum og ám. Í slíkum útköllum skiptir hraðaviðbragð miklu máli ásamt öryggi og fagmennsku. Við straumvatnsbjörgun reynir mikið á samvinnu allra sem að koma og traust á milli viðbragsaðila þarf að vera 100%. Þeir sem hoppa út í vatnsfall verða að geta treyst félögum á þurru landi til að vaka yfir þeim þar til verkefni lýkur.
Þekking í straumvatnsbjörgun nýtist víða í starfi sveitarinnar.
Höfundur: Vala Dröfn Hauksdóttir

Deila fréttinni