Hundahópur HSSK samanstendur af fjórum teymum. Þrjú þeirra, Ársól og Móa, Freydís og Lotta, Þorbjörg og Jökla eru af íslenskum ættum eða hundategundinni íslenskur fjárhundur. Sú tegund hefur fylgt íslensku þjóðinni frá landnámi og í gegnum tíðina hafa fjölmargir íslenskir fjárhundar starfað sem leitarhundar. Íslenski fjárhundurinn er einkum þekktur sem smalahundur og hefur hann gott úthald í löngum vegalengdum, sem mikill kostur við leit.
Fjórða teymið samanstendur af Helgu og Dimmalimm, sem er af tegundinni Beauceron, Dimmalimm er úr öðru goti þessarar tegundar á Íslandi. Tegundin var upprunalega ræktuð í Frakklandi á 16. öld og var hún notuð til smalamennsku og til verndar á búfénaði og nautgripum. Á síðari árum hefur Beauceron-tegundin verið notuð í lögreglu- og öryggisstörfum, auk leitar- og björgunarstarfa, vegna styrks, greindar og úthalds. Dimmalimm er fyrsti hundur sinnar tegundar til að starfa með íslenskri björgunarsveit og er hún efnilegur hundur í þetta starf.
Á árinu hafa farið fram margar sunnudags æfingar og námskeið á vegum Björgunarhundasveitar Íslands, BHSÍ. Til að mynda fór teymi á snjóflóðanámskeið BHSÍ á Sólheimajökul í mars síðastliðnum, þar sem teymin æfa sig í leit í snjó og grafa upp fígúrant sem getur verið á allt að þriggja metra dýpi í snjó. Slík námskeið eru mikil keyrsla fyrir hundana þar sem þau standa yfir fimm daga og er mikið álag fyrir hundinn að læra margt nýtt á skömmum tíma. Sumarnámskeiðin eru fjögur talsins, hvert um sig yfir þrjá daga, þar sem teymin fá að takast á við svæðisvinnu, byggja upp sterka markeringu og ganga í ýmis konar landslagi. Hundar ná miklum framförum á slíkum námskeiðum líkt og teymin okkar gerðu í sumar.
Höfundur: Ársól Þöll Guðmundsdóttir
Myndir eftir: Víking Óla Magnússon
Deila fréttinni