Fyrirhuguð er stofnun nýrrar slysavarnadeildar í Kópavogi í samstarfi við Hjálparsveit skáta í Kópavogi. Slysavarnadeildin mun m.a. starfa að forvörnum og slysavörnum barna auk aðstoðar við björgunarsveitir.
Haldinn verður kynningarfundur í húsnæði Hjálparsveitar skáta í Kópavogi, Bakkabraut 4, 200, Kópavogi, hinn 23. febrúar kl. 20:00.
Við bjóðum alla áhugasama hjartanlega velkomna.
Deila fréttinni