Fréttir

Undanfarar æfa

Laugardaginn 28. september héldu nokkrir félagar í undanfaraflokk sveitarinnar til æfinga í Hveragerði.Markmið æfingarinnar var að undanfarar í þjálfun (svokallaðar undanrennur!) æfðu sig í framkvæmd fjallabjörgunar undir handleiðslu reyndari manna. Farið var yfir grunn kerfi fjallabjörgunar, en björgunarsveitir höfuðborgarsvæðisins vinna allar eftir sömu kerfum sem auðveldar samvinnu í aðgerðum til muna. Nauðsynlegt er að æfa þessi atriði vel svo öll …

Haustið fer af stað hjá Undanförum

Í gærkvöldi var fyrsta samæfing undanfara sunnan heiða þennan veturinn. Sveitirnar skipta á milli sín einni æfingu á mánuði allan veturinn og er þema þeirra mismunandi. Septemberæfingin var haldin af Björgunarsveit Hafnarfjarðar en sú æfing er alla jafna létt upprifjunaræfing til að koma mönnum (og konum!) í gírinn fyrir veturinn. Spora menn buðu til sín í nýja húsnæðið þeirra sem …

Ný stjórn

Ný stjórn hefur tekið til starfa og haldast fundartímar óbreyttir, eða annar hvern mánudag. Fundirnir eru kl. 19:00 á undan sveitarfundi fyrsta mánudag í mánuði og kl. 20:15 tveimur vikum seinna. Verkaskipting nýrrar stjónar er sem hér segir: Kristján Maack Formaður Sigurður Ólafur Sigurðsson Varaformaður Gunnlaugur Einar Briem Gjaldkeri Jónína Aðalsteinsdóttir Ritari Einar Eysteinsson Meðstjórnandi Elfa Þöll Grétarsdóttir Meðstjórnandi Magnea …

Hjálparsveit skáta í Kópavogi