Nýliðakynning 2.september

Miðvikudaginn 2. september kl. 20:00 verður nýliðakynning hjá Hjálparsveit skáta í Kópavogi. Allir sem hafa áhuga á að starfa með björgunarsveitinni eru velkomnir á kynninguna.

Kynningin fer fram í Björgunarmiðstöðinni í Kópavogi að Bakkabraut 4.

Daginn eftir (fimmtudaginn 3. september) verður svo gengið á Vífilsfell og eftir það getur fólk staðfest skráningu í nýliðaþjálfunina ef það hefur enn áhuga.

Deila fréttinni

Nýjustu fréttir

Hjálparsveit skáta í Kópavogi