Nýliðakynning haustið 2022

Kynning á nýliðastarfi Hjálparsveitar skáta í Kópavogi fer fram miðvikudaginn 31. ágúst nk. klukkan 20:30 í Björgunarmiðstöðinni okkar að Bakkabraut 4 í Kópavogi.

Starf björgunarfólks er fjölbreytt, krefjandi, skemmtilegt og ævintýralegt! Við erum til taks þegar eitthvað á bjátar og alltaf á vaktinni. Okkar verkefni eru fyrst og fremst leit og björgun þegar mannslíf og munir eru í hættu.

Nýliðastarf er opið þeim sem náð hafa 18 ára aldri, hafa góð tök á íslensku og eru reiðubúin að skuldbinda sig til þjálfunar í tvö ár.

Við hvetjum öll áhugasöm um að mæta á kynningu sveitarinnar á miðvikudaginn. Hlökkum til að sjá ykkur!

Deila fréttinni

Nýjustu fréttir

Hjálparsveit skáta í Kópavogi