Þriðjudaginn 13. september n. k. verður kynning á unglingastarfi Hjálparsveitar skáta Kópavogi. Kynningin hefst kl 20:00 í sal Björgunarmiðstöðvarinnar við Bakkabraut 4. Boðið er uppá öflugt félagsstarf fyrir unglinga í Kópavogi sem fæddir eru á árunum 1999, 2000 og 2001. Í starfinu eru þáttakendur kynntir fyrir grunnatriðum björgunarstarfa og almennrar ferðamennsku. Þeir öðlast þar með dýrmæta reynslu af útivist, ferðamennsku, …
Hefur þú áhuga á björgunarstörfum og útivist eða ferðamennsku? Vilt þú láta gott af þér leiða eða ertu hreinlega forvitin/n um það hvað björgunarsveitir gera? Kíktu þá til okkar hér í Hjálparsveit skáta í Kópavogi. Kynning verður haldin miðvikudaginn 7. september kl. 20:00 í húsi hjálparsveitarinnar við Bakkabraut 4 í Kópavogi. Fimmtudaginn 8. september verður farið í létta göngu á …
Hluti sveitarinnar er núna á leiðinni upp í Nýjadal á Sprengisandsleið til að taka við Hálendisvakt björgunarsveitanna þar af björgunarsveitunum Húnum og Strönd. Hálendisvaktin gengur út á að hafa björgunarsveitir tiltækar nær mögulegum verkefnum á hálendinu til að stytta útkallstíma og bæta við viðbragð á viðkomandi svæðum. Í ár mannar hjálparsveitin tvær vikur, fyrri vikuna á Sprengisandi 7. - 14. …
Ársskýrsla Hjálparsveitar skáta í Kópavogi fyrir starfsárið 2015-2016 er komin út. Í ársskýrslu er stiklað á stóru um starf sveitarinnar og þeirra flokka og nefnda sem innan hennar starfa. Skýrslan er gefin út árlega fyrir aðalfund sveitarinnar sem er dagskrá á morgun, föstudag. Ársskýrsluna er hægt að opna hér í vefútgáfu (issuu) eða sækja og vista í skjali (pdf).
Það hefur verið mikið að gera í hjálparsveitinni undanfarið. Helgina fyrir páska fór fram stöðumat nýliða 1. Það er hópurinn sem hóf nýliðaþjálfun hjá sveitinni síðasta haust. Í stöðumatinu sýndu nýliðarnir fram á að þeir hafi skilið og tileinkað sér þau vinnubrögð sem þeim hafa verið kennd í vetur. Í páskafríinu var farið í þriggja daga æfingaferð inn á Fjallabakssvæðið. …
Flugeldasalan hefst, 28. desember 2015. Við verðum á 5 stöðum í Kópavogi í ár. Bakkabraut 4: Björgunarmiðstöðin við Kópavogshöfn (Stór sölustaður) Dalveg 6-8: Í húsnæði Kraftvéla (Stór sölustaður) Nýbýlavegi 10: Rétt hjá Bónus Nýbýlavegi Versölum 5: Við Salalaug Vallakór 4: Við Krónuna í Kórahverfi Opnunartímar 28. desember 2015: Opið frá kl. 10 - 22 29. desember 2015: Opið frá kl. …
Áramótablað sveitarinnar 2015 er farið í prentun og verður dreift á heimili í Kópavogi strax í byrjun næstu viku. Þetta er í 25. skiptið sem sveitin gefur út blað um áramót og er það mjög veglegt í ár. Í því er meðal annars að finna sögur og myndir úr starfi sveitarinnar síðasta árið auk kynningar á flugeldasölunni sem hefst 28. …
Athugið: Þessi frétt er um brennuna á gamlárskvöld árið 2015 en tímasetningar og staðsetning er eins fyrir árið 2017. Sjá Brenna og flugeldasýning í Kópavogi 2017. Að venju verður brenna og flugeldasýning á félagssvæði Breiðabliks í Kópavogsdal á gamlárskvöld. Brennan verður á sama stað og í fyrra við Smárahvammsvöll, fótboltavöllinn sem er næstur Digraneskirkju. Dagskrá 31. desember 2015 Kl. 20:30: …
Undirbúningur fyrir flugeldasölu sveitarinnar 2015 hefur verið í fullum gangi núna síðustu vikur. Flugeldar eru seldir 28. - 31. desember á flugeldasölustöðum sveitarinnar útum allan Kópavog og síðan verður þrettándasala í húsnæði sveitarinnar við Bakkabraut. Björgunarsveitir flytja í sameiningu inn flugelda til landsins undir merkjum Flugeldamarkaða Björgunarsveitanna og selur hver sveit í sinni heimabyggð. Allur ágóði sölunnar hérna í Kópavogi …
Dagurinn í dag var tímamótadagur hjá okkur í HSSK því vð fengum afhendan nýjan bát sem er hannaður og smíðaður af bátaframleiðandanum Rafnar. Báturinn er yfirbyggður sem gerir hann úthaldsmeiri í verkefnum, hlífir mannskapnum fyrir veðri og vindum, eykur til muna öryggi björgunarsveitarfólks og ræður við verra sjóveður í ófyrirséðum björgunarverkefnum. Sæti eru fyrir sex manns og er hægt að …