Fréttir

Björgunarhundar í HSSK

Hundahópur HSSK samanstendur af fjórum teymum. Þrjú þeirra, Ársól og Móa, Freydís og Lotta, Þorbjörg og Jökla eru af íslenskum ættum eða hundategundinni íslenskur fjárhundur. Sú tegund hefur fylgt íslensku þjóðinni frá landnámi og í gegnum tíðina hafa fjölmargir íslenskir fjárhundar starfað sem leitarhundar. Íslenski fjárhundurinn er einkum þekktur sem smalahundur og hefur hann gott úthald í löngum vegalengdum, sem …

Neyðarkall 2025 er Straumvatnsbjörgunarmaður

Neyðarkallinn árið 2025 er Straumvatnsbjörgunarmaður. Var hann gerður í minningu Sigurðar Kristófers McQuillan Óskarssonar, félaga okkar í Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, en hann lést í hörmulegu slysi við straumvatnsbjörgunaræfingar í Tungufljóti í nóvember á síðasta ári. Við minnumst hans með virðingu og þakklæti. Í HSSK er öflugur straumvatnsbjörgunarhópur. Félagar hans eru tilbúnir að takast á við leitar- og björgunaraðgerðir í vötnum og …

Kynning á nýliðaþjálfun HSSK

Hefur þú áhuga á björgunarsveitarstarfi og langar að vita meira um hvað felst í því að verða nýliði hjá HSSK? Miðvikudaginn 26. ágúst kl. 20:00 höldum við kynningu á nýliðaþjálfun Hjálparsveitar skáta í Kópavogi í húsakynnum okkar að Tónahvarfi 8. Á kynningunni förum við yfir starfsemi sveitarinnar, verkefnin okkar og hvernig nýliðaþjálfun HSSK er uppbyggð. Nýliðaþjálfunin er krefjandi, fjölbreytt og …

Áramótablað 2025

Áramótablað HSSK er komið út og verður borið í hús í Kópavogi 26. og 27. desember. Félagar í hjálparsveitinni og fjölskyldur þeirra sjá um útburðinn. Hægt að sækja vefútgáfu hér.

Flugeldasýning 2025

Sveitin mun standa fyrir flugeldasýningu að vanda en í ár verður sú breyting að hún verður haldin 29. desember og hefst klukkan 20:00. Sýningunni verður skotið upp á Glaðheimasvæðinu austan Reykjanesbrautar. Hún verður sýnileg víða að úr Kópavogi ef veður leyfir, til að mynda úr Smárahverfi, Lindum, Sölum og sunnanverðu Digranesi.

Áramótablað 2024

Áramótablað HSSK var borið í hús í Kópavogi 26. og 27. desember. Félagar í hjálparsveitinni og fjölskyldur þeirra sjá um útburðinn á blaðinu að þessu sinni. Við erum ótrúlega stolt af blaðinu okkar sem er yfirfullt af myndum og greinum sem segja frá fjölbreyttu starfi, sögu sveitarinnar og útköllum síðasta árið svo eitthvað sé nefnt. Ljóst var að útburðurinn yrði …

Flugeldasala áramótin 2024-2025

Flugeldasalan áramótin 2024-2025 hefst 28. desember og stendur fram til klukkan 16:00 á gamlársdag. Flugeldasalan er stærsta fjáröflunin okkar og stendur undir megninu af kostnaði við rekstur og uppbyggingu hjálparsveitarinnar ár hvert.

Áramótablað 2023

Áramótablað sveitarinnar er komið úr prentun! Það mun koma inn um lúguna á heimilum í Kópavogi sem afþakka ekki fjölpóst á morgun. Í blaðinu sem er sérstaklega veglegt í ár fá lesendur innsýn í fjölbreytt starf sveitarinnar á árinu. Opna vefútgáfu

Flugeldasala áramótin 2023-2024

Flugeldasalan áramótin 2023-2024 hefst 28. desember og stendur fram til klukkan 16:00 á gamlársdag. Flugeldasalan er stærsta fjáröflunin okkar og stendur undir megninu af kostnaði við rekstur og uppbyggingu hjálparsveitarinnar ár hvert.

Neyðarkall til fyrirtækja

Salan á neyðarkalli til fyrirtækja 2023 er hafin. Flestir þekkja lyklakippurnar sem við og aðrar björgunarsveitir höfum verið að selja i fjáröflunarskyni til almennings í nóvember síðustu ár. Sumir kannast líka við að hafa séð aðeins stærri útgáfu af neyðarkallinum í fyrirtækjum hér og þar. Það er stóri neyðarkallinn svokallaði sem er ætlaður aðilum í atvinnurekstri. Við leitum nú til …

Hjálparsveit skáta í Kópavogi