Flugeldasalan áramótin 2020-2021 hófst 28. desember og stendur fram á Gamlárskvöld. Flugeldasala björgunarsveitanna er stærsta fjáröflunin okkar og stendur undir megninu af kostnaði við rekstur og uppbyggingu hjálparsveitarinnar ár hvert. Í ár erum við með ýmsar ráðstafanir á sölustöðum okkar til að tryggja smitvarnir. Það er yfirleitt lang mest að gera hjá okkur að kvöldi 30. desember og svo á …
Áramótablað sveitarinnar fyrir árið 2020 hefur verið borið út á heimili í Kópavogi. Blaðið fjallar um starf sveitarinnar og gefur innsýn inn í hina ýmsu hluta björgunarsveitarstarfsins. Áramótablað 2020 - vefútgáfa
Flugeldasala fyrir áramótin er hafin á netinu. Afhending fer fram dagana 28. - 31. desember í Björgunarmiðstöðinni við Kópavogshöfn, Bakkabraut 4. Við hvetjum fólk til að vera tímanlega í flugeldainnkaupum í ár til að forðast öngþveiti síðustu daga ársins. Netverslun Hjálparsveitar skáta í Kópavogi
Áramótablað sveitarinnar fyrir árið 2019 var borið út í hús í Kópavogi í dag. Blaðið fjallar um starf sveitarinnar og gefur innsýn inn í hina ýmsu hluta björgunarsveitarstarfsins. Afmæli sveitarinnar er meðal annars gerð góð skil í blaðinu. Áramótablað 2019 - vefútgáfa.
Flugeldasalan áramótin 2019-2020 hefst 28. desember og stendur fram á Gamlárskvöld. Flugeldasala björgunarsveitanna er stærsta fjáröflunin okkar og stendur undir megninu af kostnaði við rekstur og uppbyggingu hjálparsveitarinnar ár hvert. Við verðum á 4 stöðum í Kópavogi í ár. Sölustaðir Bakkabraut 4: Björgunarmiðstöðin við Kópavogshöfn (Stór sölustaður) Dalveg 6-8: Í húsnæði Kraftvéla (Stór sölustaður) Versölum 5: Við Salalaug Vallakór 4: …
Áramótabrenna og flugeldasýning verður á félagssvæði Breiðabliks í Kópavogsdal á gamlárskvöld í ár eins og áður. Dagskrá 31. desember 2019 Kl. 20:30: Kveikt verður í brennunni Kl. 21:10: Flugeldasýning hefst Staðsetning Í ár verður brennan á nýjum stað sunnan við Fífuna. Kynnir er Samúel Örn Erlingsson en Ásgeir Páll heldur uppi fjörinu. Brennuheilræði Skiljum eigin flugelda eftir heima. Af öryggisástæðum …
Dagana 31. október til 2. nóvember verður árleg sala Neyðarkallsins sem er ein af okkar mikilvægustu fjáröflunum. Í ár fagnar Hjálparsveit skáta í Kópavogi 50. ára afmæli sínu en stofnfundur sveitarinnar var haldinn 4. nóvember árið 1969. Af því tilefni ætlum við að vera með afmælishátíð í Smáralind samhliða sölu á Neyðarkallinum. Þar verður hægt að skoða hluta af búnaði …
Brenna og flugeldasýning verður á félagssvæði Breiðabliks í Kópavogsdal á gamlárskvöld. Brennan verður á sama stað og síðustu ár austan við Sporthúsið. Dagskrá 31. desember 2018 Kl. 20:30: Kveikt í brennunni Kl. 21:10: Flugeldasýningin hefst Brennuheilræði Skiljum flugeldana eftir heima. Klæðum okkur eftir veðri. Höldum okkur í öruggri fjarlægð frá brennunni. Komum labbandi ef við erum í göngufæri, hvílum bílinn.
Hefst 28. desember, opið 10 - 22 og til kl. 16 á gamlársdag. 5 sölustaðir víðsvegar í Kópavogi. Flugeldasalan er mikilvægasta fjáröflun hjálparsveitarinnar og stendur undir stærstum hluta af kostnaði við rekstur sveitarinnar og kaup á björgunarbúnaði allt árið um kring.
Áramótablað sveitarinnar er komið núþegar eða á leiðinni í öll hús í Kópavogi. Blaðið fjallar um starf sveitarinnar og gefur innsýn inn í hina ýmsu hluta björgunarsveitarstarfsins. Blaðið er einnig aðgengilegt hér í vefútgáfu.